Gudrun Published on August 30, 2008
by Gudrunpro

Gudrun's blog

Browse posts
Be Happy
Posted on October 28, 2008
3 comments (latest 3 weeks ago)
autumn
Posted on September 20, 2008
New browser - Google Chrome
Posted on September 2nd, 2008
9 comments (latest 2 months ago)
Copenhagen Photo Marathon
6 comments (latest 2 months ago)
Plato and a Platypus Walk into a Bar - Understanding Philosophy through Jokes
Posted on August 27, 2008
7 comments (latest 2 months ago)
An Olympic Medal to Iceland on Sunday
Posted on August 22, 2008
6 comments (latest 2 months ago)
ZOO
Posted on August 22, 2008
6 comments (latest 2 months ago)
Handball - Olympic Games - Breaking News :o)
Posted on August 12, 2008
1 comment (latest 3 months ago)
ND-filters (Neutral Density) 10 stops or ....?
Posted on July 7, 2008
4 comments (latest 4 months ago)

More information

This post is public
© All rights reserved
  1. 143 visits

Copenhagen Photo Marathon

Saturday August 30, 2008 at 06:35AM

As of 11:00 today, I will be taking part in the Copenhagen Photo Marathon. Every 4 hours the participants get 4 new subjects - at 11:00, 15:00, 19:00 & 23:00 today and at 03:00 & 07:00 (Sunday) and then we deliver between 10:01 and 11:30 Sunday morning.

Please send a cheering thought my way - I know it will help me keep on going for all 24 hours.

Thank you :)

G

......

30 hours later and I am still alive and (almost) kicking. I made it and now I just have to wait for around 3 weeks for the results - and will post the shots then. It was great fun to do this!

6 Comments / add your comment?

Pixie pro says:
Frábært hjá þér! Veit ekki hvort ég gæti vakað í 24 tíma og ennþá verið að einbeita mér að ljósmyndun og subjecti... ;o)

Gangi þér vel Guðrún... þú massar þetta!!! :D
Posted 2 months ago. ( permalink )
Gudrun pro replies:
Púha. Þá dragnaðist maður loks heim og nú er ég búin að vera á fótum síðan klukkan 8 í gærmorgun. Fékk eina hænu, hún var klukkutímalöng, í bílnum. Og nóttina áður þá vakti dyrabjallan mig hálf þrjú - greinilega ekki munur á nöfnunum Gonzales og Gísladóttir :) - alveg var ég urrandi pirruð.
Nú, en þetta gekk bara bærilega. Ég notaði svolítinn tíma í þá fyrstu, þurfti undirbúning. Fyrsta myndefnið tengist alltaf þátttökunúmerinu og í þetta sinn hét það Maraþonmaðurinn. Svo ég þurfti að verða mér út um tússpenna - ákvað að skrifa númerið mitt aftan á skærgræna vestið sem er orðin skylda að hafa í bílnum í mörgum Evrópulöndum, svo maður sjáist ef það springur eða bensínið klárast. Og svo þurfti ég að stilla sjálfri mér upp, með aðra myndavél og svo að tímasetja hina rétt og stilla og hvað veit ég. Þetta er bara ágæt mynd. Svo var efni númer tvö og það var það "leiðinlegasta" af öllum 24. Sangvær sem ku leggjast út á ensku sem Sing-a-long. Það stóð rosalega í mér og ég notaði alltof mikinn tíma í það. Svo þegar ég var loks búin og á leið í næsta, þá birtist lausnin hreinlega hjólandi :) Ég set myndirnar inn hér í dag eða á morgun, og hef þær bara fyrir vini í bili. Hin 22 efnin gengu bara vel. Svolítið strembið að taka svona margar næturmyndir, en þá er gott að eiga hann Gitzo minn þrífót, höfuðið ættað frá Manfrotto - mikið skelfing kom þetta par að góðum notum í nótt.
Þegar ég var búin með 21 mynd, þá vildi ég bara sofa, taka númer 22 og fá mér svo hænu. En ég vissi að ég átti eftir að nota tíma í að sortera og henda (það má taka margar af sama).
Allt hófst þetta og var hin besta skemmtun, bara svefnleysið sem er galli :)
Og nú er a.m.k. þriggja vikna bið. Það þarf að framkalla allar filmur þeirra sem eru í þeirri deild og svo er farið að dæma, talsverð vinna. Mér finnst þau sem taka filmukeppnina algjörar hetjur. Eitt væri að taka 24 myndir að degi til - það er svo allt önnur Ella að taka næturmyndir og þú mátt ekki skemma svo mikið sem einn ramma, þá ertu úr stóru keppninni.
En, það verður spennandi að sjá úrslitin og takk fyrir góðar óskir.

Breyting: Bíð með að setja inn myndir, sem sagt þangað til úrslitin eru klár :)
Posted 2 months ago. ( permalink )
Gudrun edited this comment 2 months ago.
Pixie pro replies:
Ég segi nú bara, til lukku með að klára þetta dæmi!! :o) Hlakka til að sjá myndirnar þegur þú setur þær inn... sérstaklega Maraþonmanninn ;o)
Posted 2 months ago. ( permalink )
Gunnsteinn Jonsson pro says:
Ja hérna segi ég nú bara. Þetta er engin smá maraþon keppni en það er samt gaman að þessu. Það verður gaman að sjá útkomuna :)
Posted 2 months ago. ( permalink / translate )
Gudrun pro replies:
Um leið og úrslitin verða klár læt ég myndirnar hérna inn - eins og er þá langar mig ekki beint í svona törn aftur, en ef það verður 12 tíma maraþon aftur (hefur verið undanfarin ár, bara ekki í ár) þá er ég til. Svo er náttúrlega aldrei að vita þegar frá dregur og maður gleymir þreytunni, þá verða 24 tímar kannski freistandi.
Posted 2 months ago. ( permalink )
Gudrun edited this comment 2 months ago.
Gunnsteinn Jonsson pro replies:
Sjóaarar sem voru að klára erfiða vertíð lofuðu sér því að gera þetta aldrei aftur en alltaf komu þeir aftur. Þú verður fyrst til að skrá þig í næstu keppni LOL
Posted 2 months ago. ( permalink )

Add your comment

Reply to this comment

Edit your comment

Please sign in to post a comment Sign in now?


rss Latest comments – Subscribe to the feed of this post comments.