As of 11:00 today, I will be taking part in the Copenhagen Photo Marathon. Every 4 hours the participants get 4 new subjects - at 11:00, 15:00, 19:00 & 23:00 today and at 03:00 & 07:00 (Sunday) and then we deliver between 10:01 and 11:30 Sunday morning.
Please send a cheering thought my way - I know it will help me keep on going for all 24 hours.
Thank you :)
G
......
30 hours later and I am still alive and (almost) kicking. I made it and now I just have to wait for around 3 weeks for the results - and will post the shots then. It was great fun to do this!
Send a message
Search for members
Pixiepro says:
Gangi þér vel Guðrún... þú massar þetta!!! :D
Gudrunpro replies:
Nú, en þetta gekk bara bærilega. Ég notaði svolítinn tíma í þá fyrstu, þurfti undirbúning. Fyrsta myndefnið tengist alltaf þátttökunúmerinu og í þetta sinn hét það Maraþonmaðurinn. Svo ég þurfti að verða mér út um tússpenna - ákvað að skrifa númerið mitt aftan á skærgræna vestið sem er orðin skylda að hafa í bílnum í mörgum Evrópulöndum, svo maður sjáist ef það springur eða bensínið klárast. Og svo þurfti ég að stilla sjálfri mér upp, með aðra myndavél og svo að tímasetja hina rétt og stilla og hvað veit ég. Þetta er bara ágæt mynd. Svo var efni númer tvö og það var það "leiðinlegasta" af öllum 24. Sangvær sem ku leggjast út á ensku sem Sing-a-long. Það stóð rosalega í mér og ég notaði alltof mikinn tíma í það. Svo þegar ég var loks búin og á leið í næsta, þá birtist lausnin hreinlega hjólandi :) Ég set myndirnar inn hér í dag eða á morgun, og hef þær bara fyrir vini í bili. Hin 22 efnin gengu bara vel. Svolítið strembið að taka svona margar næturmyndir, en þá er gott að eiga hann Gitzo minn þrífót, höfuðið ættað frá Manfrotto - mikið skelfing kom þetta par að góðum notum í nótt.
Þegar ég var búin með 21 mynd, þá vildi ég bara sofa, taka númer 22 og fá mér svo hænu. En ég vissi að ég átti eftir að nota tíma í að sortera og henda (það má taka margar af sama).
Allt hófst þetta og var hin besta skemmtun, bara svefnleysið sem er galli :)
Og nú er a.m.k. þriggja vikna bið. Það þarf að framkalla allar filmur þeirra sem eru í þeirri deild og svo er farið að dæma, talsverð vinna. Mér finnst þau sem taka filmukeppnina algjörar hetjur. Eitt væri að taka 24 myndir að degi til - það er svo allt önnur Ella að taka næturmyndir og þú mátt ekki skemma svo mikið sem einn ramma, þá ertu úr stóru keppninni.
En, það verður spennandi að sjá úrslitin og takk fyrir góðar óskir.
Breyting: Bíð með að setja inn myndir, sem sagt þangað til úrslitin eru klár :)
Gudrun edited this comment 4 months ago.
Pixiepro replies:
Gunnsteinn Jonssonpro says:
Gudrunpro replies:
Gudrun edited this comment 4 months ago.
Gunnsteinn Jonssonpro replies: